Spíran veislusalur
Spíran er bjartur og fallegur veislusalur í nýju húsi Garðheima við Álfabakka 6. Á daginn er þar rekin veitingastaður.
Salurinn er leigður út í veislur eftir klukkan 18:00 á laugardögum og sunnudögum.
Góð lofthæð og mikill gróður einkenna salinn. Bambusljós og pálmatré búa til suðræna stemningu.
Í veislur er gengið inn um sér inngang frá bílastæði við hliðina á húsinu.
Salurinn er mjög rúmgóður og tekur 110 manns í sitjandi borðhald og hægt er að raða upp borðum á fjölbreyttan hátt, til dæmis sem langborð eða 8 manna borð, með eða án dúka. Einnig er hægt að raða upp stólum í leikhúsuppstillingu fyrir menningarviðburði og athafnir.
Fyrir miðjum sal er stórt framreiðsluborð fyrir matarveitingar og drykki.
Salurinn er eingöngu leigður út með veitingum og sér veisluþjónusta Kokkarnir um veitingar í salnum.
Á sumrin er hægt að opna út á verönd aftan við húsið þar sem hægt er að njóta kvöldsólarinnar.
Spíran hentar fyrir brúðkaup, árshátíðar, fyrirtækjaskemmtanir, vorfagnaði, afmæli, fermingarveislur, jólahlaðborð.
Nánari upplýsingar í síma 511 4466 eða í gegnum netfangið kokkarnir@kokkarnir.is
- 110 manns til borðs
- Salur afhendist klukkan 18:00 og viðburðir geta hafist kl 18:30
- Eingöngu veitingar úr Spírunni-Kokkunum
- Sér inngangur í salinn beint af bílastæði
- Hægt að opna út á verönd á sumrin
- Hljóðkerfi fyrir dinnertónlist
- Falleg birta og hlýlegt umhverfi
- Stórt framreiðsluborð fyrir miðjum sal
- Gott aðgengi og næg bílastæði framan við salinn